Í körfunni eru:
0 items

Samtals:
0 kr.

Skilmálar

 

Sending og kostnaður:
Vörurnar er hægt að sækja í verslun okkar að Tjarnargötu 2 Reykjanesbæ en verða annars sendar með pósti ef ekki koma fyrirmæli um annað. Sendingakostnaður greiðist af kaupanda á pósthúsinu þegar varan er sótt þangað. Allar vörur eru sendar næsta dag eftir móttöku pöntunar, þó ekki á laugardögum og sunnudögum.

Öllum pöntunum er dreift af Póstinum og gilda afhendingar – og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar.  Bústoð ehf ber enga ábyrg á skemmdum sem kunna að verða á vörum í flutningi.

Ber að hafa í huga að stærri hluti getur þurft að senda á flutningsstöðvar og verður haft samband við kaupanda um hvaða stöð hann óskar eftir að fá vöruna senda á.

Greiðsla:
Mögulegt er að greiða fyrir vörukaup með kortum (Mastercard og Visa) Greiðslan fer fram í gegnum örugga afgreiðslu Borgun ehf.  Einnig er hægt að millifæra á reikning verslunarinnar og eða hringja í okkur með símgreiðslu.

Skilafrestur – skiptiréttur:
Hægt er að skila og skipta öllum vörum svo lengi sem þær eru ennþá í vöruúrvali okkar, en því aðeins ef varan er ónotuð og í upprunalegum umbúðum einnig skal kaupandi framvísa kvittun fyrir vörukaupunum. Kaupandi greiðir sjálfur flutningskostnað fyrir vörur sem er skipt/skilað. Ekki er tekið við skilavörum séu þær sendar með póstkröfu.

Ábyrgð:
Ábyrgðarskilmálar eru samkvæmt íslenskum neytendalögum.